2009-07-19
Nýjar Júlímyndir
2009-07-03
Nýjar júní myndir
2009-04-22
Nýjar April myndir
2009-03-24
Nýjar mars myndir
2009-01-19
Nýjar myndir
2008-11-29
6 ný videó
2008-11-21
Nýjar nóvembermyndir.
2008-10-15
Nýjar októbermyndir
2008-10-04
Nýjar septembermyndir.
Allt fínt að frétta af okkur. Tobías er hættur að nota bleyju og það gengur ágætlega. Marlý er mjög ánægð í skólanum og vildi alveg vera lengur en skólin er bara 3 tímar á dag.
2008-09-13
Marlý er búin að læra að hjóla á hjálpardekkja. Verið er að reyna venja Tobías af því að vera með bleyju en hann er ekki mjög áhugasamur.
2008-08-14
Nýjar júlí og ágúst myndir
2008-07-07
Nýjar júlímyndir
2008-06-24
Fjölskyldan komin heim úr vikuferð til Boston og New York. Yndisleg ferð. Nýjar júnímyndir
2008-05-25
Nýjar myndir í apríl og maí
2008-05-19
Nýjar myndir maj
2008-05-13
Nýjar myndar í maj
2008-04-26
Nýjar myndir í apríl og Aldur
2008-04-04
Takk fyrir afmæliskveðjurnar. Héldum sameiginlega afmælisveislu 22 mars þar sem margir vinir okkar fögnuðu með okkur. Fengum margar fallegar gjafir, takk fyrir okkur. Nýjar myndir.
Kveðja
Marlý og Tobías
2008-03-17
Nýjar myndir
2008-03-11
Tobías er kurteisari en foreldrar hans héldu. Ein af fyrstu setningunum sem hann sagði var: Takk fyrir mig. Síðan segir hann mjög oft: "mera spís" þegar við erum að borða og við fórum að spá í hvort það byggi lítill dani í honum og hann væri að biðja um meira að borða sem sagt: mere spise. En í gær áttuðum við á okkur að litli amerikanin okkar var í rauninni að segja: meira, pleace.
2008-02-29
Allt gott að frétta af okkur. Marlý búin að læra að reima skóna sína og Tobías farin að segja I´m okey.
2008-01-29
Nýjar myndir - nýtt lykilorð (nýtt lykilorð er í jólakortinu) eða verið óhrædd við að senda email og fá nýja lykilorðið.
2008-01-25
Nýjar myndir
2008-01-17
Gleðilegt ár. Nýjar myndir.
Allir hressir, áttum yndisleg jól og áramót. Tobías er byrjaður í leikskóla, hann var mjög spenntur að fara með systur sinni fyrsta daginn en síðan var þetta ekki eins spennandi þegar hann fattaði að mamma hans var ekki með og hann var ekki með systur sinni en þetta er allt að koma og hann er ánægðari með hverjum deginum. Marlý er mjög ánægð í leikskólanum og er að læra að skrifa og tala ensku. Kalli er ánægður í vinnunni og Sibba veit ekkert hvað hún á að gera við allan þennan frítíma á meðan börnin eru í leikskólanum.
Kveðja frá Via Menta nr.1
2007-12-24
Nýjar desembermyndir
Gleðileg jól
2007-11-17
Nýjar myndir
2007-10-24
Fylgist með skógareldunum live í Google Earth frá þessum link:
http://activefiremaps.fs.fed.us/kml/conus.kmz Hægt er að sjá hver við eigum heima í Hnit valmyndinni.
2007-10-24
2007-10-23
Meira en 12 skógareldar eru í gangi í suður Kaliforníu núna. Sá eldur sem er næst okkur hefur náð til Foothill Ranch til þessa en slökkvuliðsmenn Orange County eru til þessa búnir að ná að bjarga öllum húsunum þar. Vinnufélagi Kalla og konan hans búa í Foothill Ranch og hafa yfirgefið hús sitt (Ed og Janelle, sjá OC kort). Eldurinn er á hraðri leið suður, en þeir reikna með að ná að stoppa hann við El Toro road (Merkt með dökkbláu striki á OC korti) eða í versta falli við Trabuco skurðinn við Rancho Santa Margarita (líka dökkblátt á OC korti). Einnig er annar eldur í Ladera Ranch sem er mjög lítill og stafar engin hætta af enþá. Stefan/Mette og Kalli/Emelía búa nálægt þeim eldi.
Kort af OC
Kort af LA
2007-08-21
Það eru komnar nýjar myndir. Annars er allt fínt að frétta af okkur. Marlý gengur vel á leikskólanum og skemmtir sér vel. Tobías þarf nú líka að fara á leikskóla og er stefnan að hann byrji eftir áramót og þá er bara að vona að mamman fái atvinnuleyfið og vinnuna. Pabbinn er líka ánægður með sitt. Kveðja frá Via Menta nr. 1
2007-08-07
Marlý er alltaf að syngja og oftast verður "ó mamma gef mér rós í hárið á mér" fyrir valinu. En textinn er aðeins örðuvísi þegar hún syngur þetta...
ó mamma gef mér rós í hárið á mér, tveir litlir strákar eru að toga í skottið á mér, annar er bleittur og hinn er sér, ó mamma gef mér rós í hárið á mér. Þegiðu stelpa þú færð eina rós og farðu bara að mjólka þig.
2007-03-22
Takk fyrir afmæliskveðjurnar.
Nýjar myndir.
2007-03-08
Marlý er að læra stafina og hefur hún komið með ýmsar skemmtilegar setningar í sambandi við það. Eins og t.d. þegar hún var að læra Q, þá sagði hún: Já það er hann sem stendur.... eins og í laginu: ...ætla ég Q þar standi hjá.
Síðan var hún að syngja stafa lagið og síðustu setninguna syngur hún: erindi þessi lítil föt. Síðan hugsaði hún sig aðeins um og spurði: Mamma eru þetta lítil föt eins og á mig eða eins og á Tobías....
2007-02-24
Myndir af nýja húsinu. Hægrismellið HÉR og veljið 'Open in new window..'
2007-01-29
Heimferð. Lögðum af stað um 11 leitið og ákváðum að stoppa í Sacramento þar sem enginn okkar hafði verið þar áður. Borðuðum á Hard Rock sem var í miðborginni, áttum ánægjulega stund saman og þökkuðum hvort öðru fyrir frábæra helgi og vonumst til að þetta verði árlegur viðburður. Síðan kvöddum við og keyrðum aðeins um Sacramento áður en við héldum heim á leið.
2007-01-27
Skíðadagur Kalla og Sibbu. Ákveðið var að skiptast á að fara á skíði og passa. Við byrjuðum og var ferðinni heitið á stórt skíðasvæði sem heitir North Star sem var hið glæsilegasta. Við fundum fljótlega út úr því að þó maður var orðin ágætur á skíðum fyrir 6 árum, þá er maður kannski ekki alveg eins fær í dag. Þannig að við tókum því bara rólega og fórum í auðveldar brekkur eða vorum mjög lengi í erfiðum brekkum (við = Sibba). En þetta gekk allt vel og var alveg gífurlega gaman og hrikalega flott útsýni yfir fallegt svæði. Krakkarnir skemmtu sér vel með Sirrý, Veigari og börnum. Tobías var bara góður og Marlý var náttúrulega með besta vini sínum og skemmtu þau sér konunglega. Sirrý og Veigar sáu svo um matinn um kvöldið og fengum við dýrindis nautasteik, meðlæti og ís í eftirrétt. Kvöldið fór svo bara í afslöppun og spjall.
2007-01-26
Fjölskylduskíðadagur. Fórum á skíðasvæði sem var eiginlega við hliðina á "kofanum". Þetta var frekar lítið svæði sem hentaði okkur mjög vel þar sem Marlý og Viktor voru að stíga sín fyrstu skíðaskref. Marlý vildi bara láta pabba sinn renna með sig en stóð sig samt mjög vel. Tobías svaf í kerrunni og mamman sat á bekk í sólinni og horfði á skíðakappana. Marlý var síðan afskaplega þreytt og fór og lagði sig í kerrunni hans Tobíasar, sem var nú farin að kanna þessa furðulega hvíta og kalda sem var að vatni þegar hann smakkaði á því. Pabbinn rendi sér nokkrar ferðir og leyfði síðan mömmunni að fara en hún fór bara eina ferð og var sú ferð að mestu leiti farin á maganum. Eftir að skíðasvæðinu lokaði keyrðum við aðeins um Truckee og skoðuðum Lake Tahoe. Um kvöldið var svo borðað á pizzustað í Truckee og voru allir bara sáttir. Síðan voru krakkar svæfðir og foreldrarnir spiluðu Trivial og við förum ekkert nánar út í það....
2007-01-25
Fórum í skíðaferð til Lake Tahoe. Fengum lánað "kofa" hjá Thinh sem Kalli var að vinna hjá. Sirrý, Veigar og börn komu með okkur og verðum í kofanum í 4 daga. Það tók 9 tíma að keyra með tveimum klukkutíma stoppum, krakkarnir voru rosalega góð alla leiðina og gekk allt vel þrátt fyrir smá sjokk þegar bíll fyrir framan okkur keyrði á dádýr og við sáum dýrið fljúga yfir götuna rétt fyrir framan okkur. Kofinn sem reyndist vera þriggja hæða hús var í Truckee sem er lítill bær norðan við Lake Tahoe. Það var ískuldi þegar við komum en þar sem þessi kofi var vel útbúið öllum nútímaþægindum vorum við ekki lengi að kynda kofann. Síðan valdi fólk sér herbergi og farið að sofa enda klukkan orðin 2.
2007-01-22
Marlý: Mamma, ég og Tobías og pabbi erum með blue augu og þú ert með green augu og Viddi (toystory) er með brún augu. En við erum allir með svart í miðjunni.
2007-01-21
Nýjar myndir...
2006-12-24
Hlekkir og Hnit bætt við á síðuna.
2006-12-12
Villa á heimasíðunni löguð.
(Síðan virkaði ekki rétt með nýja Inernet Explorer 7.0)
2006-12-03
Jólaball íslendingafélagsins. Dansað í kringum jólatré, borðuðum kökur, síðan komu 2 jólasveinar og gáfu krökkunum súkkulaðidagatal. Marlý var svolítið hrædd við jólasveinana en fannst samt mjög gaman að hitta þá og fá dagatal með súkkulaði. Hittum mikið af skemmtilegu fólki.
2006-12-02
Marlý hætt að nota snuð. Náttúrulega löngu komin tími á þetta og hún var bara sátt við að láta jólasveininn hafa allar snuddurnar. Fékk líka þessa fínu Tinkerbell barbiedúkku í staðinn.
2006-12-01
Fórum á skauta á útiskautasvellið í Irvine Spectrum. Marlý er ekkert sérstaklega dugleg að skauta sjálf, finnst best að láta pabba sinn draga sig.
2006-11-30
Jólasokkurinn hengdur upp. Marlý er búin að spekulera heilmikið í því hvernig jólasveinninn komist inn til að setja í jólasokkinn. Hún spurði t.d. pabba sinn hvort að jólasveinninn vissi kóðann á þjófavarnarkerfinu og þegar henni var sagt að hún yrði að fara snemma að sofa því jólasveinninn gæfi bara börnum gjafir sem væru sofandi. Hún hugsaði sig um í smá stund og sagði síðan að hún myndi nú örugglega vakna þegar hann kæmi vegna þess að hann væri í svo stórum skóm og það er ekki hægt að læðast í stórum skóm, þannig að þá væri það ekki henni að kenna ef hún væri vakandi þegar hann kæmi.
2006-11-28
Nýtt haust vídeó....
2006-11-24
Thanksgiving. Buðum Sune, Miu og lille Johan í mat. Elduðum reyndar mat fyrir 20 manns, alltaf gott að eiga afganga. Borðuðum yfir okkur af kalkún, meðlæti og eplapie. Allir voru mjög þakklátir fyrir skemmtilegt kvöld og góðan mat.
2006-11-18
Fórum til Sirrý og Veigars í "sleepover". Pabba var boðið út með strákunum og Sirrý bauð mömmu og krökkunum til sín í pizzu og videó, síðan gistum við hjá þeim. Krakkarnir léku sér og síðan horfðum á Santa Claus þangað til börnin sofnuðu. Agalega gaman.
2006-11-15
Marlý og Tobías fóru í pössun til Miu og Sune, pabbi fór til San José og Sirrý bauð mömmu á James Blunt tónleika. Marlý var mjög ánægð að fara í pössun til þeirra þar sem hún ætlaði að biðja Sune að búa til Mikka Mús vöfflur og svo eiga þau líka Peter Pan á DVD. Pössunin gekk mjög vel og náði mamma í börnin um miðnætti.
2006-11-10
Fórum til Sirrý og Co, tilefnið var að gera eitthvað skemmtilegt fyrir krakkana. Fyrst var farið á Benihana sem er japanskt steikhús og borðuð "naudadeik" sem er uppáhaldsmatur prinsessunar. Síðan fórum við á innileikvöll, þar sem krakkarnir skemmtu sér rosalega vel, líka Tobías sem skreið út um allt. Stoppuðum svo í nokkra tíma hjá Sirrý og Co, sem var mjög gaman eins og vanalega.
2006-11-07
Viktor kom í heimsókn. Fórum út á leikvöll, hjóluðum, borðuðum mac n´cheese, lékum með fjallalestina, poppuðum og horfðum á spiderman þangað til Marlý sofnaði. Síðan var farið í búðarleik og var hlutverkaskipan eitthvað óljós og endaði mamman á að vera búðarkonan af því þau vildu bæði vera kúnnar með kreditkort. Mamma hans Viktors kom svo með pick up stick mat handa okkur og borðuðum við saman áður en þau fóru heim. Mjög skemmtilegur dagur enda NÓG að gera.
2006-11-03
Fórum í heimsókn til the Insungs.Marlý og Nikolaj voru mjög ánægð að hittast og fóru strax inn í herbergi að leika. Síðan var okkur boðið í fínan kóreskan hádegismat sem var eins og hlaðborð fyrir fjölda manns. MA fékk að prufa "rafmagns"bílinn hans Nikolaj og eins og sannur kvennmaður keyrði hún beint inní næsta runna og sleppti ekki "bensíngjöfinni" fyrr en ég tók fótinn hennar af petalanum.
2006-10-31
Við fórum í Halloweenpartý til Sirrý og Veigars. Það var rosalega gaman, þau buðu til sín nokkrum vinum í mat og trick or treat á eftir. Kalli fór fyrst aðeins út með MA að tricka og treata, síðan borðuðum við ljúfengan mat að hætti hússins og eftir matin fórum við MA með í göngutúr um hverfið þar sem Sirrý og Veigar sýndu okkur eitthvað það brjálæðislegasta Halloween skraut sem við höfum nokkurntíman séð. Sumir voru búnir að breyta görðunum sínum í kirkjugarða, klæða sig í "scary" búninga og voru að bregða fólki, við urðum nú svo lítið hræddar. MA var ekkert sérlega duglega að safna nammi, sem var líka bara fínt þar sem hún borðar mjög takmarkað sælgæti og það myndi bara enda í ruslinu. Þetta var allavega mjög skemmtilegt kvöld fyrir okkur öll.
2006-10-26
Tobías er byrjaður að skríða. Ég sagði Marlý að nú yrði hún að passa enþá betur upp á að smáhlutir eins og barbieskór ættu ekki að liggja á gólfinu, vegna þess að þá myndi Tobías borða þá og það væri hættulegt. Síðan fór hún að borða Cheerios og það fóru nokkur á gólfið. Ég bað hana vinsamlegast að taka þetta upp eftir sig en þá svaraði hún: en mamma Tobías má alveg borða Cheerios.... kveðja Sibba
2006-10-25
Amma Allý á afmæli í dag. Til hamingju.
2006-10-19
Fórum til Las Vegas með Sune, Miu og Johan. Gistum á MGM Grand sem er voðalega stórt hótel. Þetta var 3 Vegas ferðin hennar Marlý og 2 hjá Tobíasi.
Pabbi og Sune voru að fara á ljósa og hljóðsýningu. Síðan var skipt í lið og fóru mamma og Mia út að borða á rosalega flottan japanskan veitingastað og síðan á Cirque Du Soleil sýningu. Pabbi og Sune fóru síðan kvöldið eftir. Krakkarnir fengu bara pizzu og gosbrunnashow. Skemmtileg ferð.
2006-10-18
Í dag var heimasíðan uppfærð vegna áróðurs sem skrifað var í gestabókina. Spamið í gestabókinni kom frá Póllandi, Kína og Japan og hafa viðkomandi IP tölur verið settar á svartann lista.
Síðan hefur einnig fengið síu sem bannar meðal annars ýmiskonar dónaskap og html kóða í gestabókinna.
Verið samt óhrædd við að skrifa nýjar kveðjur.
Kv,
Kalli
2006-10-18
Fórum í Sea World með Miu, Johan og konu vinnufélaga Kalla og syni þeirra. Sáum Shamu (háhyrninginn) sýningu og höfrungasýningu. Marlý fékk að halda á krossfisk og síðan fórum við á risastórann leikvöll inni í Sea World. Síðan keyrðum við heim og borðuðum pizzu með Sune, Miu, Johan og hinum sem við munum ekki hvað heita.
2006-10-16
Marlý er byrjuð að læra stafina í Mömmuskólanum. Búin að læra að skrifa A, B, C, D og E. Hún er svolítið lík mömmu sinni, ef eitthvað tekst ekki í fyrstu tilraun, missir hún áhugan og vill ekki reyna aftur. Þannig að kennarinn og nemandinn eru að berjast við sama veikleikann.
2006-10-13
Tobías er núna komin með 4 tennur, mamma fann eina í gær og pabbi aðra í dag.
2006-10-12
Tobías er staðinn upp. Stendur upp í rúminu sínu og togar sig upp allsstaðar sem hann getur.
2006-10-10
Marlý vill ekki vera í leikskólanum. Byrjar að gráta kvöldið áður en hún á að fara og segist bara vilja vera heima hjá mömmu. Sömdum við hana að hún yrði hálfan daginn til að byrja með en hún er samt ekki ánægð.
2006-10-07
Fórum til LA, skoðuðum Santa Monica og enduðum í mat hjá Sirrý og Veigari. Marlý var mjög spennt að hitta Viktor enda ekki búin að hitta hann í mánuð. Hún bara skilur ekki afhverju hún geti ekki verið í sama leikskóla og hann. Spyr reglulega: Mamma, akkurru? Mamman reynir að útskýra vegalengd og fleira en það virðist ekki vera atriði þegar maður er 3 ára, sem svarar: við keyrum bara á bílnum hans pabba. En allavega skemmtum okkur vel hjá Sirrý og co eins og vanalega og lögðum af stað heim á leið í skjóli nætur eins og oft áður. Takk fyrir okkur.
2006-10-01
Fórum í Disneyland með Sune, Miu og Johan. Marlý fór í mörg skemmtileg tæki og sá Jojo´s Circus sýningu. Síðan fengu allir sér súpu í brauði, en það er orðið uppáhaldsmatur prinsessunar. Eftir Disneylandferðina, var farið í mollið og keyptur grímubúningur fyrir Halloween en Marlý vill vera Tinkerbell.
2006-09-26
Fyrsti dagurinn í leikskólanum. Marlý fór ánægð af stað en varð svo þreytt enda ekki búin að jafna sig eftir flugið, að hún steinsofnaði og var beðið um að hún yrði sótt.
2006-09-23
Amma Magga og afi Bergþór komu í heimsókn til Erlu og Jóns. Áttum góðan dag með þeim og borðuðum síðan dýrindis mat í nýja eldhúsinu. Marlý og afi fóru út að labba með Madsen og Mallí sem eru hundar Erlu og Jóns, það fannst Marlý ekki leiðinlegt enda var hún orðin mjög ánægð með að hafa hundana í kring um sig og leika við þá.
2006-09-21
Amma Allý passaði okkur á meðan pabbi og mamma fóru út að borða á Sticks´n Sushi mmmm rosa gott.
2006-09-18
Matarboð hjá Helgu og Rúnari. Hittum "síðustu" Kagsåvinina Bjarka, Baldur, Gunnu, Ólöf Söru, Palla og börnin þeirra yfir góðri máltíð. Krakkarnir léku sér mjög vel saman og við sátum og spölluðum frameftir kvöldi. Marlý var mjög ánægð að hitta krakkana.
2006-09-17
Marlý og mamma fóru í Experimentarium með Dóru, Gesti, Bergþóru og Svavari. Marlý og Bergþóra léku sér og prufuðu öll tækin saman. Marlý var ekkert að gefa Beggu stóru frænku eftir og reyndi að gera allt sem Bergþóra gerði og tókst það með misjöfnum árangri. Mjög skemmtilegur dagur.
2006-09-15
Matarboð hjá ömmu og afa. Daniel ömmubróðir kom líka í heimsókn og borðuðum við flæskesteg og tilheyrandi.
2006-09-09
Marlý fór í Tivolí með pabba, afa, ömmu og Olgu. Mamma og Tobías voru í heimsókn hjá Erlu og Jóni á meðan.
2006-09-08
Lentum í Danmörku, amma Allý hitti okkur út á flugvelli. Gistum á SAS á Amager fyrstu 5 næturnar en svo buðu Erla og Jón okkur gistingu. Við vorum hjá þeim 10 daga. Takk fyrir okkur
2006-08-30
Marlý og mamma voru að skoða myndir af fjölskyldunni og vinum. Mamma benti á myndirnar og spurði Marlý hver væri á myndinni. Þetta gekk mjög vel og Marlý mundi eftir flestum en þegar mamma benti á mynd af langömmu Sæunni, þá sagði Marlý: Þetta er langamma pönnukaka. Mamma sagði þá: ertu alveg viss um það. Þá svaraði Marlý: Já þessi, hún er alltaf að búa til pönnukökur...
2006-08-26
Marlý fékk pabba sinn til að kaupa á sig "há"hælaða skó. Hún kallar þá prinsessu skó og myndi sofa í þeim ef hún vissi ekki að maður sefur ekki í skóm.
2006-08-04
Skoðuðum leikskóla sem heitir Turtle Rock, sem er rétt hjá vinnunni hans pabba. Marlý líst mjög vel á leikskólann, þannig að það var ákveðið að hún byrji 26. september. Hún verður þriðjudaga og fimmtudaga í leikskólanum. Síðan fer hún líklega á fimleikanámskeið á miðvikudögum.
2006-08-02
Tobías er byrjaður að sitja án stuðnings. Rosa duglegur.
2006-07-30
Systkinin voru mæld í bak og fyrir. Marlý var 93 cm og 11,3 kg. Tobías var 65 cm og 6,8kg.
2006-07-26
Tobías komin með aðra tönn.
2006-07-22
Tobías komin með tönn. Pabbi fann hana.
2006-07-19
Fórum í heimsókn til Viktors og co. Mættum kl. 11 og það var farið að leika um leið og við komum inn um dyrnar. Síðan var okkur boðið í grill og salatið góða. Krakkarnir léku sér úti og inni, skemmtu sér rosalega vel. Það var farið í sund í garðinum, barist við kóngulær svo eitthvað sé nefnt. Um 6 leitið var svo ákveðið að halda heim eftir frábæran dag. Marlý var alveg búin á því eftir daginn og sofnaði um leið og hún settist í bílinn og svaf alla leiðina heim. Hún hélt svo áfram að sofa þegar heim var komið og svaf til næsta dags. Aldrei gerst áður enda óvön að hafa svona mikið að gera. Verðum að endurtaka þetta. Takk fyrir okkur Sirrý og Veigar.
2006-07-12
Sirrý og Viktor komu í heimsókn. Borðuðum bananabrauð, fórum út á leikvöll, horfðum á Latabæ og lékum okkur. Rosalega gaman að fá heimsókn.
2006-07-10
Þegar Marlý er berfætt þá segist hún vera alsber á tánum.
2006-07-08
Afmælis/innflutnings/grillveisla. Sirrý, Veigar, Viktor, Linda, Anton, Tinna, Áslaug, Ármann, Jakob, Bjarni, Erla, Tryggvi, Carmen og Andrea Reyn komu í heimsókn. Fórum í sund og borðuðum svo góðan mat og kökur fram eftir kvöldi.
2006-07-01
Flytjum í nýja íbúð í Newport Coast.
2006-06-24
Pabbi 30 ára. Vorum í San Francisco, borðuðum góðan mat og nutum dagsins.
2006-06-04
Tobías Ingi skírður í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Séra Þórhallur Heimisson skírði, eitthvað misskildi hann pabba og sagði fyrst Tobías Siggi en leiðrétti sig síðan. Þetta var allt í lagi þar sem kirkjugestir vissu allir nafnið. Síðan var haldin veisla í sal í Gullsmára 9 þar sem langamma Sæunn á heima. Tobías var settur í kjól sem amma Magga saumaði. Það hjálpuðust allir að með að gera flotta veislu handa litla prinsinum. Tobías fékk fullt af fallegum gjöfum og þökkum við fyrir þær.
2006-04-27
Marlý, Tobías og mamma fóru til Íslands. Millilentu í Minniapolis. Fjölskyldan hennar mömmu var samferða okkur. Flugið gekk mjög vel og við vorum þæg og góð svona næstum allan tíman.
2006-04-17
Skoðuðum Hoover Dam. Síðan fórum við heim en fjölskyldan hennar mömmu fór til Grand Canyon.
2006-04-16
Fórum til Las Vegas. Gistum á Luxor hótelinu sem er eins og píramíti.
2006-04-12
Dóra, Gestur, Bergþóra, Jónína og Högni komu í heimsókn og verða til 27 apríl.
2006-03-25
3 ára afmælisveisla. Mamma, pabbi og amma bökuðu fullt af kökum á meðan við afi fórum út að hjóla. Síðan komu Sirrý, Veigar, Ragnhildur, Viktor, Sune, Mia, Johan, Martin, Milla, Mikkel, Mie, Lasse, Stefan, Mette, Daniel, Julie, Insung og Nikolaj komu í heimsókn. Fékk fullt af flottum gjöfum sem ég var rosalega ánægð með.
2006-03-23
Tóbías Ingi og Mamma koma heim frá spítalanum í dag :)
Marlý orðin ansi þreytt á þessu mömmuleysi.
2006-03-22
Marlý 3 ára.
Borðuðum kökur á spítalanum hjá mömmu. Fékk fullt af pökkum, þar á meðal Barbie stórustelpuhjól.
2006-03-20
Tóbías Ingi Karlsson fæddist kl.8:01 (pst)
2006-03-16
Amma Magga og afi Bergþór komu í heimsókn og verða til 27 apríl.
2006-01-28
Sirrý, Veigar og Ragnhildur fóru á skíði og við pössuðum Viktor á meðan. Kalli fór með krakkana út á snjóþotu á meðan Tobías var sofandi. Síðan fékk Tobías að fara út að leika með þeim í snjónum. Tókum síðan bara rólega dag og versluðum í matinn og bökuðum snúða. Þannig að þegar skíðafólkið kom heim var boðið upp á nýbakaða snúða. Um kvöldið borðuðum við aspas í forrétt, pestókjúkling í aðalrétt, mojito og aðra áfenga drykki í eftirrétt. Ljómandi gott.
2005-12-15
Áki vinur hans pabba kemur í heimsókn með Emil vini sínum. Þeir verða til 28 desember
2005-11-24
Thanksgiving. Buðum Martin, Stefan, Mette, Daniel, Julie, Sune, Miu og lille Johan í risa kalkún. Reynum að vera svolítið amerisk.
2005-10-22
Fór á skautanámskeið. Var hálfhrædd við kennarana og vildi bara vera hjá mömmu og pabba. Finnst samt mjög gaman að skauta.
2005-10-16
Fórum í San Diego dýragarðinn með Nikolaj og foreldrum hans. Rosalega gaman, við Nikolja leiddumst næstum allan tíman og skoðuðum dýrin saman.
2005-10-01
Eignaðist nýjan vin. Hann heitir Nikolaj og er sonur Insung sem pabbi vinnur með. Við erum jafngömul og finnst gaman að leika saman þó við skiljum ekki alveg hvort annað þar sem hann kemur frá Kóreu. En ég tala bara við hann á Íslensku. Hann kann núna að segja api, komdu, mamma og kúka sem er auðvitað nauðsynlegustu orðin í Íslensku.
2005-09-26
Flytjum til Orange County USA
2005-09-20
Síðasti dagurinn á leikskólanum. Eignaðist margar góða vini eins og Signe, Sofie og Valdemar. Ég bauð öllum upp á ís þegar ég hætti og þau gáfu mér myndir sem þau höfðu teiknað fyrir mig.
2005-05-17
Byrjaði á nýjum leikskóla sem heitir Klakkebjerg. Stofan mín heitir Bamsestuen og þar er íslensk fóstra sem heitir Ásdís.
2005-03-24
2 ára afmælisveisla með teletubbies köku sem pabbi bjó til. Fékk margar góðar gjafir frá ömmu Allý, afa Jón Inga, Olgu, Erlu, Jóni, Silju, Elíasi, Viktori, Erlu, Svenna, Helgu, Ólöf Söru, Palla, Helenu Evu, Helgu, Rúnari, Arnari, Maríu Katrínu, Bjarka, Rakel, Baldri, Gunnu, Emblu, Bjarti, Helenu, Einari og Elínóru.
2005-03-22
Marlý 2 ára. Fór með köku í leikskólann.
2004-07-09
Mamma 30 ára. Rosa garðveisla. Fullt af gestum og góðum mat.
2003-12-24
Fyrstu jólin hennar Marlý. Borðuðum hjá afa Jón Inga og ömmu Allý í Grafarvogi, langamma Sæunn var líka í heimsókn. Fékk marga flotta pakka frá fjölskyldunni hans pabba. Síðan keyrðum við í Hafnarfjörðin til afa Bergþórs og ömmu Möggu. Þar var öll fjölskyldan hennar mömmu saman komin. Þar voru líka fullt af flottum pökkum sem mamma hjálpaði mér að opna pakkana.
2003-12-01
Marlý byrjar á leikskólanum Myretuen sem er vuggestue á Kagsåkollegiet. Deildin heitir Sydpolen og Helga vinkona er á sömu deild.
2003-10-06
Frá 1. október breytist síðan aðeins.
Núna inniheldur myndaalbúmið líka myndir af fjölskyldu minni og vinum.
2003-09-07
Nú er ég búin að fá fimm mánaða sprautu hjá lækninum. Það var bara smá vont en ég hætti að gráta um leið og ég sá stjána bangsa.
Ég og mamma fengum rosalega gubbupest í gær og ég var með alveg tóman mega. Læknirin sagði að ég ætti að sjúga salt kex og drekka sykurvatn.
2003-08-28
Ljósmóðirinn kom í dag og ég er orðin 5,3Kg og 59 cm.
Hér er mynd af mér í nýja Trip Trap stólnum sem ég fékk í skírnargjöf frá ömmu og afa.
2003-08-22
Jæja, þá er ég orðin fimm mánaða og pabbi loksins búin að setja fleirri myndir inná síðuna.
2003-07-30
Í dag var ég að leika mér á maganum og náði að velta mér yfir á bakið alveg alein.
Ég er búin að væla og slefa svolítið síðastliðna daga þannig að ég gæti verið að fá tennur.
2003-07-30
Dóra móða, Gestur og Bergþóra frænka eru búin að vera í heimsókn í rúmlega viku og eru að fara til Íslands í dag. Olga frænka kemur svo í heimsókn á morgun og verður alein í tvær vikur þangað til amma og afi koma í heimsókn.
2003-07-24
Ljósmóðirin kom í dag og mældi mig bak og fyrir. Ég er orðin 4900g sem er bara mjög gott þótt að mamma og pabbi héldu að ég væri orðin þyngri. Síðan er ég orðin 57cm löng.
Dóra móða og fjölskylda eru í heimsókn núna og við erum öll á leiðinni í Tívolí.
Olga frænka kemur svo 31 júlí og ætlar að vera ein hjá okkur í smá stund áður en amma og afi koma.
Þannig að mér á ekki eftir að leiðast næstu vikurnar ;)
2003-07-24
Myndavélin verður tæmd í kvöld þannig að það er von á nýjum myndum á síðunna bráðlega.
2003-07-16
Jæja, Þá er pabbi loksins búin að setja stóru tölvuna heima í gang þannig að hægt sé að uppfæra heimasíðunna aftur.
Það eru komnar svo margar nýjar myndir að það er búið að breyta valmyndinni lítilsháttar.
Ég er búin að ná mér uppúr kvefinu og er farin að þola hitan betur.
2003-07-14
Nú er ég komin heim á Kagså í hitabylgjuna. Það eru 32 gráður í skugga og ég er alveg að kafna úr hita. Ég er ekki vön þessum hitabreytingum og er komin með kvef og hita :(
2003-07-11
Jæja, þá er komið að því að tía sér heim til Köben. Það er búið að vera mjög gaman á Íslandi þótt að ég hafi ekki haft möguleika á að fara í ungbarnasund og prófa fína sundbolinn minn. Það er búið að drita um 200 myndum í ferðinni sem koma á heimasíðunna bráðlega.
2003-07-06
Margrét Allý skírð í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Það var haldin veisla heima hjá ömmu Möggu og afa Bergþóri. Marlý fékk margar góðar gjafir: Dóra og fjölskylda - Nike galla, sokka og bangsa. Amma Magga og afi Bergþór - Bækur og geisladisk. Langamma Sæunn - Baukur. Amma Allý, afi Jón Ingi og Olga Tripp Trapp stóll. Langamma Sigga - 5000 kr. og lítill gullkross. Langamma Olga og langafi Benni - Trú, von og kærleikurhálsmen. Svenni, Erla og Helga - Nike galli, sokkar, skartgripaskrín. Begga, Heiða og Katrín og fjölskyldur - Armband með höfrungum og sokkabuxur. Hildur, Steinn og börn - Nikeinniskór. Hrannar og Dagbjört - Peysa, sokkarbuxur og bolur. Gulla - Grár kjóll. Reynir og Sigrún - bolur, húa og handklæði. María og fjölskylda - Sængurver. Lilja og Jónas - Armband með maríuhænum. Fjölskyldan Græshavevej - Hvítagullskross. Randý og fjölskylda - 5000 kr. Harpa og fjölskylda - Púða í Tripp Trapp stól. Jón Svan og fjölskylda 66°norður galli. Högni - Nike peysa. Áki - Myndarammi. Magga og Viggó - Útsaumaður púði. Milla og Kalli - Armband með maríuhænum. Steina - Eplaeyrnalokkar. Þurfti að skipta nokkrum gjöfum en takk fyrir gjafirnar.
2003-06-25
Þá er ég loksinns komin til Íslands. Pabbi átti afmæli í gær og við fórum út að borða í hádeginnu. Það er búið að vera mikið fjör hérna og ég er endalaust að sjá eitthvað fólk sem ég hef ekki séð áður.
2003-06-25
Pabbi keyrði yfir ferðatölvuna sína í dag og braut skjáinn á henni þannig að það koma ekki nýjar myndir á síðunna fyrr en við komum til Danmörku.
2003-06-18
Afi Jón Ingi kom í heimsókn í gær á leið til svíþjóðar og kemur aftur á morgun á heimleiðinni.
2003-06-18
Ljósmóðirinn kom í heimsókn í dag. Ég er orðin tvisvar sinnum þyngri en þegar ég fæddist eða um 4,25kg (17merkur). Ég er líka orðin 10cm lengri (54cm).
Síðan fer ég til læknis seinna í dag og fæ þriggja mánaða sprautu í rassin :(
2003-06-06
Mynd af Dóru var bætt í dagbókina (1/4/03), ég bið afsökunar á að þú gleymdist ;)
2003-06-04
Guðný, Palli og Birna komu í heimsókn í dag.
2003-06-03
Nú er ég orðin pirruð á þessum hita, í dag mældist 29,2 gráður í skugga.
2003-05-28
Ljósmóðirin var í heimsókn áðan og sagði að ég væri búin að ná réttri þyngd aftur. Ég er nú orðin 3750g (15 merkur)
2003-05-24
Nýtt 5 mín. video komið á síðuna. ;)
2003-05-21
Þessi síða var opnuð í lok mars og síðan þá eru 1275 mismunandi tölvur búnar að heimsækja síðunna, og búið er að skoða 47474 myndir.
Takk fyrir að sýna mér svona mikin áhuga.
2003-05-21
Ljósmóðirin kom aftur í heimsókn í dag og sagði að ég væri ekki búin að þyngjast nóg. Ég er bara 3500g en á helst að vera 3600-3700. Ég þarf að vera duglegri að drekka. Annars var ég í fínu lagi að öðru leiti. Ég fékk dropa sem hjálpar mér að losa mig við loft í maganum.
2003-05-18
Prófaði nýja "hæ tekk" dótateppið sem ég fékk frá Hörpu ömmusystir og fjölskyldu. Ég get hlustað á Mozart, horft á ljósashow, skoðað mig í spegli og margt fleirra. Ég er ennþá að leita að DVD drifinu ;) Pabbi er svo æstur að fikta í teppinu að ég kemst varla að.
Ég fékk líka pening og föt frá Randý ömmusystir en er ekki búin að ákveða hvað ég ættla að kaupa mér.
Takk kærlega fyrir mig.
2003-05-18
Elli kom í heimsókn og gaf mér risapakka með marglita dóti sem ég get leikið mér með þegar ég ligg á gólfinu. Nú á ég fullt af dóti.
2003-05-16
Amma er komin í heimsókn. Fórum í labbitúr að kaupa Danska jarðaberjatertu (uppáhaldið hennar ömmu).
2003-05-13
Fór í fyrstu utanlandsferðina í dag til Malmö í Sverige.
2003-05-12
Magni Snær kom í heimsókn í fyrradag. Við töluðum heilmikið saman.
2003-05-12
Fékk pening til að kaupa barnatalstöð frá Olgu langömmu og Benna langafa svo að mamma og pabbi heyri ef ég fer að gráta útí vagninum.
2003-05-12
Fór í afmælisveislu til Nikolai í dag sem er orðin þriggja ára. Það var sól og blíða og 25 gráðu hiti þannig að ég var hálf pirruð í þessum hita og vildi fara snemma heim.
2003-05-06
Högni frændi á afmæli í dag. Til hamingju :)
2003-04-28
Fékk sængurgjöf frá Hildi, Heiðu, Beggu, Drífu, Steinu og Katrínu. Fékk svona voða fínan ömmustól (reyndar aðeins meira high tech heldur en þessir gömlu góðu.
2003-04-24
Ljósmóðirin kom í heimsókn og skrifaði fyrstu skýrsluna: "Meget fin lille pige , er født i 35. uge. Ammes efter behov, får ind imellem suppleret måltidet med udmalket mælk på flaske. Er lige begyndt at sove ca. 5 timer i træk om natten, spiser ca. hver 2-3 time om dagen. Smiler af velvære. Er opmærksom farverige ting i sine omgivelser. Får D-vitamin, ACD-dråber. Starter med Glycifer ved 1 måned. Skal til 5 ugers undersøgelse hos egen læge . Første vaccination ved 3 måneder. Kan ved uro få tilskud af vand eller kamillete. Kan eventuelt have glæde af massage af maven, samt cykel-bevægelser med benene. Næste besøg den 6. maj klokken 8:30"
2003-04-23
Fór á vigtina í dag og var orðin 2850 grömm :) Ég var eins mánaða í gær og fékk að fara í afmælisbað.
Langaamma á afmæli í dag og er orðin 90 ára.
2003-04-23
Pabbi er svo upptekin í skólanum og vinnunni að hann hefur ekki tíma til að setja inn fleirri myndir á heimasíðunna fyrr en eftir helgi.
2003-04-20
Afi Bergþór sagði að honum fyndist ég "Gómsæt" þegar ég geyspaði þannig að það sást uppí góm :)
2003-04-15
Var á spítalanum í dag í tjekki. Ég braggast vel og var útskrifuð af barnalækninum sem athugaði mig.
2003-04-11
Loksins komin heim til mömmu og pabba.
2003-04-11
Amma Margrét og Afi Bergþór komu heimsókn og verða yfir páskana
2003-04-09
Vigtin sýnir 2500g (10 merkur).
2003-04-08
Laus við sonduna úr nefinu, ég get núna borðað sjálf úr brjósti mömmu minnar.
2003-04-08
Afi Jón Ingi kom aftur í heimsókn á leið sinni til Svíþjóðar.
2003-04-05
Bað númer 3, er farin að sætta mig við þetta og finnst það meira að segja svolítið gott.
2003-04-05
Fyrsta alvöru brosið :)
2003-04-02
Afi Jón Ingi kom í heimsókn.
2003-04-01
Er orðin dugleg að taka brjóst. Drekk næstum því helming sjálf. Ég fékk Danska fánan sem verðlaun frá hjúkkunum.
2003-04-01
Dóra móða kom í heimsókn.
2003-03-25
Fyrsta baðið, ég er ekki alveg viss hvort ég eigi að brosa eða gráta
2003-03-24
Blóðsykur orðin eðlilegur, nálin fjarlægð.
2003-03-24
Núna er ég bara 1900g
2003-03-24
Amma Allý búin að vera í heimsókn alla helgina og er á leiðinni heim til Íslands.
2003-03-23
Laus við hitakassan. En er með vökva beint í æð, sondu í nefinu og öndunarmæli.
2003-03-22
Margrét Allý fæddist, klukkan 16:20. Hún var 2100 gr. og 44,5 cm. Mamma fékk meðgöngueitrun, þannig að það átti að setja fæðinguna í gang 5 vikum fyrir tímann en það gekk ekki og var Marlý þess vegna tekin með keisara. Mamma og pabbi voru búin að ákveða nafnið þegar mamma var komin 5 mánuði á leið en það er í höfuðið á ömmunum. Mamma fann svo út gælunafnið Marlý þegar hún var að hofa á Fame Akademy með Katrínu.
2003-03-22
Þarf að liggja í opnum hitakassa í einn sólahring. Hún er með of lítin blóðsykur.