Kynning:
Ég heiti Margrét Allý Karlsdóttir og fæddist á Glostrup sjúkrahúsinu í Danmörku
laugardaginn 22. Mars 2003. Ég var 2100g (8,5merkur) og 44cm. Mamma mín og Pabbi
heita Sigurbjörg Hlín Bergþórsdóttir (Sibba) og Karl Sæberg Jónsson (Kalli). Við eigum heima
í Orange County í Kaliforníu.
Fæðingarár eftir kínversku almannaki:
Ár geitarinnar
Pláneta:
Mars
Stjörnumerki:
Hrútur
(Texti frá www.mbl.is)
Hrúturinn er vormerki. Á vorin fer birta vaxandi og veður batnandi.
Mesti athafnatími ársins er fyrir höndum. Eðli Hrútsins endurspeglar
þetta og birtist meðal annars í þörf fyrir athafnasemi og innri vissu
um að lífið bjóði uppá ótal tækifæri. Hrúturinn er fyrir vikið drífandi
og fljótur að framkvæma ætlunarverk sín. Að sama skapi er honum illa við
alla bið. Hann vill gera það strax sem hann fær áhuga á.
Frumkvöðull
Hrúturinn þolir illa reglur, kerfi og vanabindingu, en hefur gaman af nýjum áskorunum.
Það má líkja honum við landnema. Hann tendrast upp þegar ný mál eru á dagskrá hans, lifnar
við og smitar út frá sér með ákafa sínum, en dofnar og verður leiður ef hann þarf að fást
of lengi við það sama. Hann er góður í upphafi, sæmilegur þegar verk er hálfnað en verður
oft að beita sig aga til að ljúka verkum. Hann er fæddur brautryðjandi og frumkvöðull, en
er síðri í rekstri og vanaverkum.
Keppni og áskoranir
Hrúturinn kappsfullur og baráttuglaður að upplagi. Hann er því uppá sitt besta þegar
honum er stillt upp við vegg, eða þegar þarf að drífa af ákveðin verk fyrir tilsettan tíma.
Þá magnast hann upp. Hann er eldsmerki og þarf því að hafa líf í kringum sig og líður best
þegar hann er að keppa eða fást við nýja áskorun. Hann þarf sömuleiðis á hreyfingu og líkamlegri
útrás að halda, annað hvort með því að stunda líkamlega vinnu eða í íþróttum, líkamsrækt og útivist.
Ef umhverfi hans er líflaust og kallar á vanabindingu og endurtekningar þá tapar hann orku.
Fram á veginn
Hrúturinn er lítið gefinn fyrir að horfa um öxl. Hann vill lifa fyrir daginn í dag og horfa
fram á veginn. Hann veltir sér því sjaldan upp úr vandamálum, að minnsta kosti ekki til langframa.
Ef erfiðleikar steðja að er hann fljótur að hrista þá af sér. Lífið býður alltaf upp á ný tækifæri,
nýjar áskoranir og ný verkefni til að keppa að.
Fljótfær og uppstökkur
Hinn dæmigerði Hrútur er fljótfær og á til að vera uppstökkur. Hann er tilfinningaríkur og skapstór.
Þetta kemur sérstaklega fram ef einhver ætlar að stöðva hann eða hindra hann í að gera það sem hann
hefur ætlað sér. Hann þolir ekki tafir. Þá er hætt við að hann rjúki skyndilega upp. Á móti kemur að
hann er fljótur að róast og fyrirgefa.
Einlægur
Dags daglega, og þegar allt er í lagi, þá er Hrúturinn einlægur og vingjarnlegur í fasi,
og yfirleitt hress og jákvæður. Hann er að mörgu leyti það sem kalla má 'hrein sál', eða maður sem
flækir hlutina ekki að óþörfu. Hann stundum svolítið barnalegur í einlægni sinni og hreinskilni, en
oftast er honum fyrirgefið, því hann meinar í raun ekkert illt með því, þó að hann skjóti á fólk eða
slái einstaka sinnum frá sér.
Snerpa og hraði
Segja má að Hrúturinn sé skorpumaður og spretthlaupari. Lífsorka hans er hröð og hann starfar einna
best þegar mikið er um að vera og krafist er snerpu og skjótrar ákvarðanatöku. Um Hrútinn er sagt að
hann eigi að treysta á fyrstu tilfinningu sína í hverju máli. Slíkt reynist honum best.
Zonar mynd: