Kynning:
Ég heiti Tobías Ingi Karlsson og fæddist á Mission Hospital í Kaliforníu
mánudaginn 20. Mars 2006. Ég var 3700g (15 merkur) og 49cm. Mamma mín og Pabbi
heita Sigurbjörg Hlín Bergþórsdóttir (Sibba) og Karl Sæberg Jónsson (Kalli). Við eigum heima
í Orange County í Kaliforníu.
Fæðingarár eftir kínversku almannaki:
Ár hundsins
Pláneta:
Neptunus
Stjörnumerki:
Fiskar
(Texti frá www.mbl.is)
Árstími Fisksins er í lok vetrar, þegar veður er umhleypingasamt. Þetta endurspeglast í eðli
Fisksins, í margbrotinni og misjafnri skapgerð. Tími Fisksins er biðtími. Vorið er að nálgast og
með því fyrirheit sumarsins en enn ríkir þó vetur. Á þessum tíma er litið um öxl yfir liðinn vetur.
Jafnframt er horft fram á við og það undirbúið eða hugleitt sem gera skal á komandi vor- og sumarmánuðum.
Þetta birtist í því að Fiskurinn hefur hæfileika til að hafa yfirsýn yfir mál og hugleiða þau í stærra samhengi.
Aðlögunarhæfni
Fiskurinn er í innsta eðli sínu næm tilfinningavera. Hann er breytilegt vatnsmerki og getur því
tjáð sig á margslunginn hátt. Hann er síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að hann hafi öll
önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fiskurinn getur því verið víðsýnn og margbrotinn, fær um að
skilja ólíkt fólk og setja sig í spor annarra. Hann hefur sterka aðlögunarhæfni en einnig fjölbreytta
valkosti um eigið líf. Hann er því oft fjölhæfur, en getur átt erfitt með að takmarka sig og 'fókusera'
á eitt ákveðið. Hann er stórhuga.
Ímyndunarafl
Annar sterkur eiginleiki Fisksins er ímyndunarafl og þar af leiðandi hæfileiki til að sjá atburði
og fólk fyrir hugskotssjónum sér. Hann hefur einnig sterkt innsæi. Þetta þýðir að Fiskurinn getur búið
til myndir af því sem hann er að hugsa um.
Tveir heimar
Tákn Fisksins er tveir fiskar sem synda hvor í sína áttina, en eru eigi að síður tengdir saman með bandi.
Þetta hefur verið túlkað á nokkra vegu. Ein kenningin er sú að til séu annars vegar Fiskar sem syndi á móti
straumnum og hins vegar þeir sem láti sig berast með veðri og vindum lífsins. Þetta getur verið rétt, en
einnig er hugsanlegt að þetta tákni að í hverjum einstökum Fiski búi tveir eðlisþættir eða ákveðin klókindi.
Fiskurinn geti því synt á móti straumnum og geri það þegar sá gállinn er á honum, en kunni einnig að sæta lagi
og berast með straumnum þegar það hentar honum betur. Önnur kenning er sú að annar Fiskurinn sé í þessum heimi
en hinn lifi í annarri veröld, í heimi ímyndunarafls, lista eða andlegra málefna, eftir því hver persónuleg
viðhorf viðkomandi eru. Það er að minnsta kosti staðreynd að Fiskurinn þolir illa gráan og hversdagslegan
veruleika og þarf á því að halda að glæða líf sitt litum og búa til ævintýri.
Menning
Áhugi á tónlist, menningu og listum er áberandi í fari Fisksins. Ef hann leggur ekki sjálfur stund á
listir hefur hann yfirleitt gaman af því að njóta lista, sækja leikhús, kvikmyndasýningar, tónlistarviðburði,
málverkasýningar og þess háttar.
Sköpun
Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Fiskurinn að fá jákvæða útrás fyrir ímyndunarafl sitt
í einhvers konar skapandi viðfangsefnum. Hann tekur mikið inn á sig og þarf því að hreinsa sig reglulega af
utanaðkomandi áhrifum. Það getur hann gert með því að njóta tónlistar, með því að draga sig annað slagið í
hlé eða með því að breyta til og skipta um umhverfi.
Stór fjölbreytileiki
Vegna sterkrar aðlögunarhæfni og sveigjanleika er sennilega erfiðast af öllum stjörnumerkjunum að setja
Fiskinn á afmarkaðan bás. Margir Fiskar sækja í listir, tónlist og dans, aðrir í fjölmiðla, sumir í stjórnmál
og enn aðrir í viðskipti. Hvert sem sviðið er nákvæmlega þá notar Fiskurinn innsæi sitt og ímyndunarafl,
og er skapandi, stórtækur og landamæralaus í athöfnum.
Zonar mynd: